Þorvaldur Arnar
Þorvaldur Arnar Guðmundsson starfar að listsköpun sinni í Liztvinnslunni og hefur jafnframt vinnuaðstöðu hjá myndlistarmanninum Bjarna Þór á Akranesi, þar sem hann býr.
Í verkum sínum sækir Þorvaldur innblástur í japanska myndasöguhefð og skapar persónur úr eigin hugarheimi í anda hennar. Hann hefur frá unga aldri haft mikla ástríðu fyrir teikningu og byrjaði að teikna aðeins 4–5 ára gamall.
Þorvaldur hefur haldið þrjár einkasýningar á Akranesi og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum, nú síðast með Listvinnzlunni í LIstasafni Samúels, í Selárdal á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.
Hann stundaði diplómanám við Myndlistaskólinn í Reykjavík og hefur auk þess notið leiðsagnar bæði í Liztvinnslunni og hjá Bjarna Þór.
Listræn lýsing á verkum
Verk Þorvaldar Arnar Guðmundssonar einkennast af persónulegri sýn, ríkulegu myndmáli og skapandi nálgun að formi og lit. Í verkunum mætast hugmyndaauðgi og tjáningarkraftur á lifandi hátt, þar sem áhersla er lögð á stemningu, samspil lita og sjónræna frásögn.
Verkin bera með sér einlægni og forvitni sem vekur athygli áhorfandans og býður honum að staldra við. Með sínum einstaka sjónræna stíl skapar Þorvaldur Arnar myndheim sem er bæði aðgengilegur og persónulegur, þar sem sköpunargleði og einstaklingsbundin tjáning njóta sín.
Verk eftir Þorvald Arnar
Viðtal við Þorvald Arnar
Vor 2025