A watercolor painting of a person with dark hair, wearing a face mask, a black shirt, and standing between metal ladders, with a pink structure in the background.
A black and white photo of a smiling person with light-colored hair, wearing a dark sweater with a ribbed collar.

Listapúkinn - Þórir Gunnarsson

Myndlistarmanneskja

Þórir starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.

Þórir hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og hélt sína fyrstu einkasýningu í Listasal Mosfellsbæjar en Þórir var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2021. Þórir hlaut Múrbrjótinn, viðurkenningu Landssamtakana Þroskahjálpar fyrir baráttu sína fyrir aðgengi að listnámi og hefur verið ötull í baráttu fyrir jafnrétti í listheiminum. 

Þórir hefur gert myndlist frá því að hann man eftir sér. Hann fær innblástur í umhverfi sínu og daglegu amstri, til dæmis í strætó, í náttúrunni, frá fuglasöng og þegar hann hleypur, en það gerir hann mikið af. Hann brennur fyrir því að gera myndlist, hefur sterkt innsæi og mikla þörf fyrir að skapa. 

Þórir hefur tekið ýmis námskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík og hefur lokið þaðan 1 árs námi í myndlist sem er hugsað sem grunnur fyrir frekara listnám.

Þórir er listamanneskja hátíðarinnar List án landamæra 2025. 

Hér er slóð inn á vefsíðu Listapúkans: https://www.listapukinn.is/

Three people sitting at a wooden table in a library, with two large bird sculptures on either side—one resembling a duck or goose on the right and a different bird on the left held by the woman. The background has bookshelves filled with books.
A drawing of a humanoid figure with a black head, yellow body with black outlines, sitting on a white surface, with legs crossed and arms resting.

Hluti af verkum Listapúkans