Person pointing at a colorful shadow display on the wall, with the shadow resembling a whimsical character, surrounded by plants.
Black and white portrait of a person with short hair, smiling slightly, wearing a dark long-sleeve top, arms crossed, standing against a plain white background.

Atli Már Indriðason

Myndlistarmanneskja

Atli starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.

Hann útskrifaðist úr 2 ára diplómanámi Myndlistaskólans í Reykjavík vorið 2017 og hefur sótt vinnustofur í myndlist við sama skóla frá árinu 2013. Hann hefur einnig sótt námskeið í leiklist og var einn af meðlimum hljómsveitarinnar Gunnar and the Rest sem gaf út vínylplötu.

Atli hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á síðustu árum. Árið 2018 hélt hann einkasýningu á Þjóðminjasafninu sem hluti af List án landamæra. Í maí 2019 hélt Atli Már einkasýningu í Listsal Mosfellsbæjar ásamt því að opna einkasýningu í Safnasafninu á Svalbarðsströnd.

Árið 2019 var Atli Már útnefndur listamanneskja hátíðarinnar List án landamæra. 

A person standing on a stage, wearing a crown, with arms raised, surrounded by scattered papers, two chairs, microphones, and sound equipment, with a bright background projection.
Young man standing in front of artwork, dressed as a superhero or sci-fi character, wearing sunglasses, dark cape, striped shirt, and sneakers.

Hluti af verkum Atla