Hvað er inngilding?
Þetta er inngilding Eftri Margréti Norðdahl
Inngilding felur í sér margbreytileika, jafnrétti og jafnræði.
Hún felur í sér að við séum samþykkt eins og við erum. Af ólíkum þjóðernum, með fjölbreyttan húðlit, fötluð og ófötluð, af öllum kynjum, kynhneigð, aldri, stétt og svo framvegis.
Inngilding er þegar við tilheyrum.
Að tilheyra þýðir að þér finnst þú samþykkt eins og þú ert og þú treystir umhverfi þínu nógu mikið til að vera þú sjálf án ótta við að vera dæmd.
Að tilheyra felur í sér að þú hefur gildi - að þú sem manneskja sért þörf og eftirsótt. Að á þig sé hlustað og þú virt.’’
MN 2022
Inngilding er að við fáum öll sömu tækifærin, valdeflingu og þann einstaklingsbundna stuðning sem við þurfum til að nýta okkur tækifærin.
Um inngildingu af vef Reykjavíkurborgar.
Í fjölmenningarlegu samfélagi er litið á fjölbreytileika sem sjálfsagðan hlut og lögð er áhersla á inngildingu (e. inclusion). Inngilding felur í sér að viðurkenna og virða fjölbreytileikann og gera alltaf ráð fyrir honum. Inngilding snýr að því að virkja allt fólk til þátttöku og gefa fjölbreyttum hópi fólks kleift að taka þátt í ákvarðanatöku.
https://reykjavik.is/fjolmenning
Um inngildingu á vinnustað af vef VR-stéttarfélags.
Inngilding á vinnustað (e. workplace inclusion) er ferli þar sem allt starfsfólk, óháð bakgrunni, kyni, kynþætti, fötlun eða öðrum þáttum, er tekið inn í fyrirtækið á jöfnun grunni.
Inngilding felur í sér að tryggja að öll hafi aðgang að tækifærum og stuðningi og að hlustað sé á raddir þeirra.
https://www.vr.is/um-vr/erlent-felagsfolk/inngilding-a-vinnustad/
Af síðu Axel Jóns Ellenarsonar