Samþykktir

1.gr. 

Félagið heitir Listvinnzlan – listorkuver fta.  Félagið starfar samkvæmt lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla sem starfa yfir landamæri. 

2. gr. 

Tilgangur og markmið félagsins er að vinna að inngildandi lista-, menningar- mennta-, og atvinnulífi þar sem öll tilheyra. Sbr. 3.gr. l. nr. 110/2021 mun félagið ekki stunda  aðra atvinnustarfsemi en þá sem nefnd er í samþykktum þessum og sem leiða má beint af tilgangi félagsins og sem hafa aðeins óverulega fjárhagslega þýðingu. 

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að koma á fót listmiðstöð, sinna fræðslu og ráðgjöf, styðja við fatlað listafólk til þátttöku og nýsköpunar í lista- menningar og atvinnulífi. 

4. gr. 

Félagsaðild.  Áhugafólk um inngildingu í Listheiminum, félög og styrktarfélög geta sótt um aðild. Umsóknir um aðild skulu sendar stjórn félagsins sem tekur ákvörðun aðildina. 

5. gr. 

Starfstímabil félagsins er almanaksárið.  Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs.  Aðeins félagsfólk má taka þátt í aðalfundi. 

6. gr. 

Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. ágúst ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.  Til almennra félagsfunda skal boða með sama hætti og aðalfundar. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti félagsfólks á fundinum ræður úrslitum mála.  Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kosning fundarstjórnanda og fundarritara

  2. Skýrsla stjórnar lögð fram

  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar

  4. Breytingar á samþykktum.

  5. Ákvörðun félagsgjalds

  6. Kosning stjórnar

  7. Kosning skoðunarmanns reikninga. 

  8. Önnur mál

Allar kosningar skulu vera skriflegar ef fleiri en eitt framboð kemur fram.

Fundargerð skal skráð um störf aðalfundar.

Samþykktum verður aðeins breytt á aðalfundi. Skriflegum tillögum þar að lútandi skal skila til stjórnar félagsins eigi síðar en 1. júní ár hvert og skal þeirra sérstaklega getið í fundarboði. Breyting á samþykktum telst samþykkt ef minnst ¾ hluta greiddra atkvæða á löglega boðuðum aðalfundi greiða henni atkvæði.

7.gr.

Stjórn félagsins skal skipuð 3 einstaklingum, formanneskju og 2 meðstjórnendum,  kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn.  Einnig skal kjósa 1 varamanneskju. Stjórnin skiptir með sér verkum.  Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda.  Formanneskja boðar til funda.  Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

8.gr. 

Á aðalfundi skal kjósa skoðunarmanneskju reikninga . Skal sú manneskja rannsaka reikninga félagsins fyrir hvert starfsár og leggja niðurstöður sínar fyrir aðalfund. Skoðunarmanneskju má ekki kjósa úr hópi stjórnarfólks, félagsfólks eða starfsfólks félagsins.  

9.gr. 

Starfsár og reikningsár er almanaksárið. Stjórnin skal hafa lokið gerð ársreikninga og lagt fyrir skoðunarmanneskju eigi síðar en einum mánuði fyrir aðalfund

10.gr.

Félagsgjöld.  Félagsfólki er skylt að greiða það félagsgjald sem aðalfundur ákveður. Ef félagsfólk er með ógreidd félagsgjöld samtals í 3 ár er heimilt að fella viðkomandi út af félagaskrá án viðvörunar. Samtökin fjármagna sig einnig með styrkjum frá opinberum aðilum og öðrum, sölu á vörum og þjónustu, og öðrum tilfallandi fjáröflunum.

11. gr. 

Slit félags.  Félagið má leysa upp á aðalfundi hafi tillaga þess efnis verið auglýst í aðalfundarboði og tillagan er samþykkt af minnst ¾ hluta greiddra atkvæða.  Ef ákveðið verður að leysa upp félagið, ber aðalfundi að sjá til þess að eigur félagsins verði nýttar til þess að stuðla að inngildingu í listheiminum.

12.gr. 

Þar sem ákvæði þessara samþykkta segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga um félög til almannaheilla nr 110/2021, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt. 

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi 09.09.2024


Dagsetning: 09.09.2024