Sýningin okkar Ómur er á dagskrá Listahátiðrar í Reykjavík 2026
ÓMUR 2026
Sýningin ÓMUR verður opnuð 24. MAÍ klukkan 15:00 í
LISTASAFN SAMÚELS, SELÁRDALUR
Sýningin stendur til - 1. SEP 2026
Nánar er fjallað um sýninguna á vef Listahátíðar 2026
Námskeið í myndasögugerð með Inga Rúnari Kjartanssyni 27.maí - 18.júní
Við kynnum með stolti stutt og hagnýtt námskeið í myndasögugerð með Inga Rúnari Kjartanssyni, myndasöguhöfundi. Í samstarfi Listvinnzlunar og Fjölmenntar.
Á námskeiðinu læra þátttakendur grunnatriði í myndasögugerð.
Dæmi um það sem er kennt á námskeiðinu:
þróa söguþráð, skapa aðalpersónu
setja söguna upp í myndarömmum
Í lok námskeiðs hafa þátttakendur búið til sína eigin stuttu myndasögu.
Kennslutímabil: 27.maí - 18.júní
Kennslutími : Fimmtudagar kl 17-19
Námskeiðið er kennt í húsnæði Listvinnslunnar, Austurstræti 5, 101 Reykjavík.
Lisapúkinn - Þórir Gunnarsson
〰️
Lisapúkinn - Þórir Gunnarsson 〰️
,,BÍL (Bandalag íslenskra listamanna) stóð fyrir kosningafundi í Tjarnarbíó laugardaginn 9.maí þar sem menningin var sett á dagskrá undir yfirskriftinni „BORGAR MENNING SIG?"
Þórir Gunnarsson mætti a fundinn fyrir hönd Listvinnzlunnar og spurði frambjóðendur hvernig þeir ætluðu að styðja við inngildingu og þátttöku fatlaðs fólks i listum og menningu.
Inni a heimasiðu BÍL (https://bil.is/category/frettir) og samfélagsmiðlum má kynna sér svör flokkana a fundinum og svor þeirra við spurningalista sem BÍL sendi út.
Sýning Ísaks Óla Strokur og spor í Gallerí Fold - Hönnunarmars 6.-10.maí
Sýningin opnar 6.maí klukkan 16:00 og stendur til 10.maí 2026.
Hvetjum alla til að kíkja við.
Myndirnar eru af síðu Gallerí Fold og HönnunarMars.
Luiza Katarzyna
Luiza Katarzyna Kierzk er nemandi í starfstengdu diplómanámi í Háskóla Íslands. Luiza hefur unnið að lokaverkefni sínu í Listvinnzlunni. Verkefni Luizu fólst í því að taka þátt í undirbúningi sýningar sem verður haldin í Listasafni Samúels á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í sumar.
Luiza kynnti lokaverkefni sitt á útskriftarráðstefnu nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði þann 24. apríl 2026 í Háskólabíói, Hagatorgi klukkan 12:50.
Í erindi sínu fjallaði Luiza um allt ferlið – frá upphaflegri hugmynd að veruleika – og sagði jafnframt frá daglegu starfi Listvinnzlunnar og skapandi umhverfi hennar.
Luiza hefur verið i starfsnámi hjá okkur í Listvinnzlunni vor og haust 2025 og kom til okkar í vor 2026 og vann að lokaverkefni sínu.
Luiza er einstök og hefur verið ómetanleg í starfi Listvinnzlunnar.
Við óskum Luizu innilega til hamingju með áfangann og þökkum henni fyrir hennar frábæra starf.
Leona Krlínová
er starfsnemi hjá Listvinnzlunni og kemur frá Tékklandi
Mynd eftir EDA BABÁK
Hún verður með okkur frá 15.apríl fram í miðjan júní.
Umfjöllun um Listvinnzluna í
The Global Disability News Network
Í febrúar heimsótti meðstjórnandi Beth Haller Listvinnzluna, listmiðstöð á Íslandi sem stofnuð var árið 2022 af listakonunni Margréti M. Norðdahl til að „byggja upp jöfnuð og fjölbreytileika í íslensk listarými. Fyrir utan að skapa aðgengilegt og innifalið rými fyrir fatlaða listamenn til að einbeita sér að verkum sínum, vinna þeir einnig að því að skilgreina nám án aðgreiningar í íslensku samfélagi, sem átti ekki sérstakt orð yfir hugtakið fyrr en árið 2021.
Farðu á hlekkinn hér fyrir neðan til að heyra frá nokkrum hæfileikaríkum fötluðum íslenskum listamönnum um skilaboðin á bak við verk þeirra og um hvernig Listvinnzlan „er að ryðja brautina fyrir aðra fatlaða og jaðarsetta listamenn af komandi kynslóðum.“
Frá Insatgram byrtingu þeirra
Sýningin okkar Ómur er á dagskrá Listahátiðrar í Reykjavík 2026
Hér er nánar fjallað um sýninguna á vef Listahátíðar 2026
ÓMUR 2026
Sýningin ÓMUR verður opnuð
24. MAÍ klukkan 15:00 í
LISTASAFN SAMÚELS, SELÁRDALUR
Hún stendur til - 1. SEP 2026
Helga Matthildur Viðarsdóttir, listakona ásamt Láru Sóley Jóhannsdóttur, listrænum stjórnanda Listahátíðar í Iðnó
Úthlutun úr Myndlista-sjóði
Listvinnzlan fékk úthlutað 500.000 kr styrk úr myndlistasjóði fyrir sýninguna Ómur í Selárdal sumar 2026
Sýning stendur yfir í Mannréttindahúsinu
Listaverk eftir listafólk sem starfar í Listvinnzlunni
Endilega kíkið við - Sigtún 42, 105 Reykjavík
Sýningin stendur fram í MaíPáskafrí Listvinnzlunnar 2026 er frá og með 25.mars.
Opnum aftur 8.apríl.
Gleðilega páska!
ListapúkinnLuiza Katarzyna
er starfsnemi hjá Listvinnzlunni
Hún mun starfa hjá okkur í vetur fram í maí.
Vinnsla skúlptúra, sýning í Selárdal.
Vinnsla skúlptúra, sýning í Selárdal.
Listafólk vinnur að gerð skúlptúra, frá grunni: Skissa - beinagrind - Hænsnavír. Næst er það múr og málning.
Hér vinna allir fullum höndum að skúlptúrum sínum fyrir sýninguna okkar í Selárdal við Arnarfjörð, Vestfjörðum í sumar.
Hér er einnig slóði inn á svipað myndskeið á Instagramsíðunni okkar: https://www.instagram.com/reel/DUD6GqoCO9i/
Listvinnzlan í Mannréttindahúsinu
Listvinnslan kíkti í heimsókn í Mannréttindahúsið 12.febrúar þar sem Margrét M. Norðdahl, stofnandi Listvinnzlunnar, Elín Sigríður María Ólafsdóttir (ESMÓ) og Þórir Gunnarsson (Listapúkinn), ráðgjafar Listvinnzlunnar sögðu frá því hvernig Listvinnzlan hefur þróast í lifandi vinnustað og listmiðstöð í hjarta Reykjavíkur.
Gestir fengu innsýn í daglegt starf Listvinnzlunnar, hvernig listafólk vinnur þar á eigin forsendum, fær faglegan stuðning, þróar sjálfstæðan listferil, skapar sér tekjur og verður virkur þátttakandi í menningarlífi landsins.
Á meðan viðburðinum stóð voru verk eftir listafólk Listsmiðjunnar sýnd á veggjum og fengu gestir tækifæri til að kynnast fjölbreyttum röddum og sjónarhornum listafólks Listvinnzlunnar.
Listvinnzlan fékk styrk frá Velferðaráði Reykjavíkurborgar
Andrea Gavern, Gunnar Már Pálsson, Hjördís Árnadóttir og Margrét M. Norðdahl hjá Listvinnzlunni tóku á móti styrknum.
Við þökkum fyrir stuðninginn!!
Þann 14.janúar var fyrsti fundur Notendaráðs Listvinnzlunnar.
Í ráðinu eru:
Elín S.M. Ólafsdóttir
Þórir Gunnarsson
Gígja Garðarsdóttir
Atli Már Indriðason
Formaður ráðsins er Elín S.M. Ólafsdóttir
Margrét M. Norðdahl er ritari hópsins.