Um Okkur
Kolbeinn Jón Magnússon
Þorvaldur Arnar Guðmundsson
Listvinnzlan er nýr skapandi vettvangur á sviði inngildingar, menningar, menntunar og lista.
Ísak Óli Sævarsson
Listmiðstöð
Listvinnzlan hefur komið á fót Listmiðstöð.
Listmiðstöðin er brýnt verkefni.
Starfsemin er atvinnuskapandi, hún eykur inngildingu í listalífi, menningarlífi og atvinnulífi.
Markmið
Markmið Listvinnzlunar eru að vinna að inngildandi lista-, menningar- mennta-, og atvinnulífi þar sem öll tilheyra.
Listvinnzlan heldur opnar smiðjur og námskeið, tekur að sér verkefni og ráðgjöf ásamt að styðja listafólk við þátttöku í listalífi.
Listvinnzlan veitir aðstoð við að halda sýningar, við sölu listaverka og aðstoðar áhugasama við að fjárfesta í myndlist.
Við Listvinnzluna starfar öflugt teymi listafólks sem býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu.
Margrét M. Norðdahl stofnaði Listvinnzluna árið 2022 en stofnun Listvinnzlunar á sér aðdraganda allt til ársins 2011. Nafnið vísar í framtíðina, frá fiskvinnslu til Listvinnzlu. Listin og skapandi vinna á sér engin takmörk og útilokar engan.
Viltu vera með
Hafðu samband, sendu okkur tölvupóst