A man in a red shirt is explaining artwork on the gallery wall to a woman holding a microphone, while a cameraman records, and another person in the background observes.
A man with glasses and a beard wearing a black hoodie with a tree and text design, standing against a textured wall.

Kolbeinn Jón Magnússon

Myndlistarmanneskja

Kolbeinn Jón Magnússon starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.

Kolbeinn lauk námi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og hefur síðan sótt fjölda námskeiða í Myndlistaskóla Reykjavíkur ásamt því að ljúka námsleiðinni 1 árs nám í myndlist árið 2021. 

Hann hefur áhuga á margskonar myndlist og fjölbreyttum efnivið, t.a.m. á módelteikningu og keramik þar sem hann gerir skúlptúra í leir.  Kolbeinn nýtir gjarnan gjörningaformið í sinni myndlist og eru gjörningarnir með sterka leiklistartengingu. 

Kolbeinn hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og listviðburða um allt land. Hann hefur sýnt verk sín á Safnasafninu á Svalbarðsströnd, tekið þátt í Listahátíðinni List án landamæra síðustu sjö ár. 

Í framtíðinni ætlar hann að vinna áfram að list sinni, hann vill mennta sig meira og hefur áhuga á því að leiðbeina öðrum í myndlist.

Three people painting a large, colorful mural on a wall. The person in the center is a man with glasses, wearing a blue T-shirt and jeans, holding a paintbrush. The person on the left, with shoulder-length hair, is wearing a multicolored plaid shirt. The person on the right, with long blonde hair tied back, is wearing a yellow T-shirt and black pants with a green sweater tied around the waist. The mural features various vibrant and abstract designs.
Person dressed as a Greek philosopher or deity, standing on rocks by the water, wearing a toga, a green helmet, holding a prop flame, and a sign with German text.

Hluti af verkum Kolbeins