Kolbeinn Jón Magnússon

Maður með gleraugu og skegg, í hettupeysu og hvítum bol, stendur upp við trévegg.

Kolbeinn Jón Magnússon starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.

Kolbeinnlauk námi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og hefur síðan sótt fjölda námskeiða í Myndlistaskóla Reykjavíkur ásamt því að ljúka námsleiðinni 1 árs nám í myndlist árið 2021. 

Hann hefur áhuga á margskonar myndlist og fjölbreyttum efnivið, t.a.m. á módelteikningu og keramik þar sem hann gerir skúlptúra í leir.  Kolbeinn nýtir gjarnan gjörningaformið í sinni myndlist og eru gjörningarnir með sterka leiklistartengingu. 

Kolbeinn hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og listviðburða um allt land. Hann hefur sýnt verk sín á Safnasafninu á Svalbarðsströnd, tekið þátt í Listahátíðinni List án landamæra síðustu sjö ár. 

Í framtíðinni ætlar hann að vinna áfram að list sinni, hann vill mennta sig meira og hefur áhuga á því að leiðbeina öðrum í myndlist.

Listræn lýsing á verkum

Verk Kolbeins Jóns Magnússonar einkennast af fjölbreyttri og tilraunakenndri nálgun þar sem ólíkir miðlar og aðferðir mætast í persónulegri myndrænni tjáningu. Í verkunum má greina forvitni gagnvart efni, formi og frásögn, þar sem teikning, málun, skúlptúr og gjörningur mynda saman fjölbreyttan og lifandi myndheim.

Myndefnið sprettur gjarnan úr hugmyndaflugi og persónulegri sköpunarþörf listamannsins, þar sem leikræn nálgun og sterk tjáning fá að njóta sín. Verkin bera með sér kraft og nærveru, þar sem áhersla er lögð á sköpunarferlið sjálft og frelsi til að kanna nýjar leiðir í myndlistinni. Samspil ólíkra miðla og tjáningarforma skapar heildstæða sjónræna upplifun sem einkennist af hugrekki, sköpunargleði og opnum möguleikum.

Verk eftir Kolbein