Taktu þátt

Með því að taka þátt fjárfestirðu í tilvist okkar og öllum þeim verkefnum sem við vinnum að.

Svart-hvít klippimynd af hópi fólks, sumir í búningum, með textanum „LISTVINNZLAN“ og „LISTORKUVER“ efst.

Listvinnzlan er óhagnaðardrifið almannaheillafélag

Ef þú vilt leggja okkur lið, taka þátt og styrkja okkar starf getur þú millifært inn á bankareikninginn okkar sem er hér fyrir neðan.

Við þiggjum allan stuðning, stóran sem smáan.

Við notum styrkina í samræmi við okkar almannaheillastarfsemi og tryggjum að þeir fari beint til þeirra verkefna sem við erum að vinna að.

Kennitala 670924-1140
Banki 0515-26-012627

Takk fyrir að vera með og styðja við starfið okkar.

Listvinnzlan er óhagnaðrdrifið amannaheillafélag sem er drifið af styrkjum frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum.

Við erum að vinna í því að sækja um að vera á almannaheillafélaga skrá Skattsins.

Þegar við erum komin á Almannaheillaskrá Skattsins þá gildir eftirfarandi skattafsláttur sem er útskýrður hér fyrir neðan.

Vor 2026 vinnum við að skúlptúrum sem verða sýndir á listasýningunni okkar Ómur.

Opnunin verður 24.maí 2026 kl. 15:00, Safn Samúels í Selárdal, Vestfjörðum.

Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og stendur til 1.september.


Fyrir einstaklinga sem styrkja (styrkveitendur)

Skattafsláttur

  • Þú getur fengið skattafslátt ef þú styrkir viðurkennd almannaheillafélög.

  • Félagið verður að vera á lista Skattsins yfir slík félög.

  • Skattafslátturinn dregst beint frá tekjuskattsstofni þínum.

Hámarks- og lágmarksstyrkur til frádráttar árið 2025:

  • Lágmark: 10.000 kr.

  • Hámark: 350.000 kr. á ári

Skilyrði:

  • Styrkurinn þarf að vera sannanlegur (t.d. millifærsla eða kortagreiðsla).

  • Ekki fæst skattafsláttur fyrir:

    • Vinnu (vinnuframlag)

    • Gjafir í formi vöru

    • Greiðslur í skiptum fyrir þjónustu eða vöru