Gallerí Z er nýtt sýningarrými í listmiðstöð Listvinnzlunnar.

Veggur með stórt hlutverk.
Þar stýrir listafólkið sem starfar á vettvangi Listvinnzlunnar sýningunum og sýnir listaverk eftir annað listafólki sem starfar í Listvinnzlunni.

Í Gallerí Z skiptist listafólk Listvinnzlunnar á að taka að sér hlutverk sýningarstjóra. Sýningarstjórinn velur verk eftir samstarfsfólk sitt, ákveður hvernig þau mætast á veggnum og hvaða sögu þau segja saman. Hver sýning verður þannig persónuleg sýn eins listamanns á verk annarrs, og veggurinn tekur á sig nýja mynd í hvert sinn sem nýr sýningarstjóri tekur við.

Að stýra sýningu snýst um að velja og raða og ákveða hvað fær að sjást. Í listheiminum hefur það hlutverk sjaldnast verið í höndum fatlaðs listafólks. Í Gallerí Z er því snúið við: listafólkið sjálft er bæði höfundar og sýningarstjórar, og það horfir á verk hvert annars með augum sem þekkja vinnuna, efniviðinn og vinnustofuna innan frá.