Bjartast á annesjum

22.febrúar 2025

Þér er boðið á sýningu sem er hluti af Uppskeru - hátíð í Hörpu, HARPA, Eyri (Við hliðina á Silfurbergi 2.hæð).

Myndlistasýning - Bjartast á annesjum

Heimilisfang: Austurbakki 2, 101 Reykjavík. Dagsetning: Opnun laugardag 22.febrúar 2025 í Eyri

Tungumál: Íslenska og táknmál á opnun

Sýningin er opin til 28.febrúar. 23.- 28 febrúar 2025 verða verkin staðsett á 1 hæð Hörpu í Hafnarstræti.

Lýsing:

Vitar eru oftast staðsettir á annesjum og skerjum. Þeir lýsa upp umhverfi sitt og vísa veginn. Það er bjartast á annesjum!

Myndlistasýningin ,,Bjartast á annesjum” samanstendur af þrívíðum verkum. Þetta er lítil sýning á stórum verkum.

Listhópur Hlutverkaseturs sýnir tvo sameiginlega skúlptúra sem heita Tilfinningavitar.

Listafólk Listvinnzlunnar sýna eigin skúlptúra

Aðgengi: Aðgengi fyrir hjólastóla er mjög gott í Hörpu en þrjár lyftur fara beint úr bílakjallara upp á allar hæðir.

Strætisvagnar: Harpa er aðeins í nokkra mínútna göngufjarlægð frá Lækjartorgi, þar stoppa margir strætisvagnar.

Aðgengilegar snyrtingar eru á öllum hæðum.

Skynvænt rými verður í Eyri á opnun sýningarinnar.

Listafólk Hlutverkaseturs:

Anna Henriksdóttir,

Alfreð Rafn Gígja,

Berglind Sigurðardóttir,

María Gísladóttir,

Frímann Jónasson,

Óskar Ögri Birgisson,

Steindór Þorgeirsson,

Svava Davíðsdóttir,

Guðrún Helga Helgadóttir,

Kristinn Arinbjörn Guðmundsson,

Kristín Atladóttir,

Steingerður Axelsdóttir,

Berglind Ósk Magnúsdóttir,

Diana Von Anchen,

Guðrún Auður Hafþórsdóttir Byrd,

Selma Björk Elíasdóttir,

Gunnar Pétur Jack og

Sophia Neuman.

Listafólk Listvinnzlunnar:

Listapúkinn - Þórir Gunnarsson,

Kolbeinn Jón Magnússon,

Helga Matthildur Viðarsdóttir,

Gígja Garðarsdóttir,

Atli Már Indriðason,

Sigrún Huld Hrafnsdóttir

E.S.M.Ó. - Elín Sigríður María Ólafsdóttir.