Atli Már Indriðason
Atli starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.
Hannútskrifaðist úr 2 ára diplómanámi Myndlistaskólans í Reykjavík vorið 2017 og hefur sótt vinnustofur í myndlist við sama skóla frá árinu 2013. Hann hefur einnig sótt námskeið í leiklist og var einn af meðlimum hljómsveitarinnar Gunnar and the Rest sem gaf út vínylplötu.
Atli hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á síðustu árum. Árið 2018 hélt hann einkasýningu á Þjóðminjasafninu sem hluti af List án landamæra. Í maí 2019 hélt Atli Már einkasýningu í Listsal Mosfellsbæjar ásamt því að opna einkasýningu í Safnasafninu á Svalbarðsströnd.
Árið 2019 var Atli Már útnefndur listamanneskja hátíðarinnar List án landamæra.
Listræn lýsing verka
Verk Atla Más Indriðasonar einkennast af litríkum persónum, ríkulegu ímyndunarafli og sterkri frásagnargáfu. Myndheimur hans sækir innblástur í ævintýri, kvikmyndir og ofurhetjur, þar sem smáatriði og leikandi nálgun skapa lifandi og kraftmikla heild.
Í verkunum sameinast sköpunargleði og persónulegur stíll á einstakan hátt. Litir, fígúrur og fjölbreytt myndefni mynda sjónrænan heim sem vekur forvitni og býður áhorfandanum að stíga inn í sögur sem eru bæði fantasíukenndar og einlægar.