Listapúkinn
Þórir Gunnarsson - Listapúkinn, starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.
Listapúkinn hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og hélt sína fyrstu einkasýningu í Listasal Mosfellsbæjar en Þórir var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2021. Þórir hlaut Múrbrjótinn, viðurkenningu Landssamtakana Þroskahjálpar fyrir baráttu sína fyrir aðgengi að listnámi og hefur verið ötull í baráttu fyrir jafnrétti í listheiminum.
Listapúkinn hefur gert myndlist frá því að hann man eftir sér. Hann fær innblástur í umhverfi sínu og daglegu amstri, til dæmis í strætó, í náttúrunni, frá fuglasöng og þegar hann hleypur, en það gerir hann mikið af. Hann brennur fyrir því að gera myndlist, hefur sterkt innsæi og mikla þörf fyrir að skapa.
Listapúkinn hefur tekið ýmis námskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík og hefur lokið þaðan 1 árs námi í myndlist sem er hugsað sem grunnur fyrir frekara listnám.
Listapúkinn er listamanneskja hátíðarinnar List án landamæra 2025.
Hér er slóð inn á vefsíðu Listapúkans: https://www.listapukinn.is/
Listræn lýsing á verkum
Verk og starfsemi Listapúkans einkennast af skapandi leik, litagleði og lifandi nálgun að myndlist þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín án hafta. Í verkefnunum mætast forvitni og sköpunarþörf á náttúrulegan hátt, þar sem unnið er með liti, form og hugmyndir á opinn og tilraunakenndan máta.
Listapúkinn skapar rými þar sem börn og þátttakendur fá að tjá sig á eigin forsendum og byggja upp sjálfstraust í gegnum sköpun. Útkoman er myndheimur sem er bæði fjölbreyttur og persónulegur, og endurspeglar gleði, frelsi og leikandi nálgun að listsköpun.