Sigrún Huld Hrafsdóttir

Svarthvít mynd af konu með stutt slétt hár, klædd í mynstraðan kjól og prjónaða peysu, brosandi, með hægri höndina á mjöðminni.

Sigrún starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.

Sigrún var margverðlaunuð afreksíþróttakona í sundi þegar hún ákvað að snúa sér alfarið listinni.

Hún hefur haldið margar einkasýningar meðal annars í Eden í Hveragerði þar sem hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1999. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga nú síðast í Safnasafninu á Svalbarðseyri sumarið 2022.

Sigrún Huld naut tilsagnar í frjálsri málun hjá Lóu Guðjónsdóttir í Listasmiðju Lóu um árabil, gekk í Lýðháskóla í Danmörku og hefur sótt námskeið hjá Fjölmennt og Listaháskóla Íslands. Sigrún lauk 2 ára diplómanámi í Myndlist frá Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2017.

Sigrún hefur unnið með myndlistarmanninum Davíð Erni Halldórssyni að sameiginlegu listaverki og að sameiginlegum verkum með listakonunni Söru Riel.

Sigrún vinnur að mestu verk sín með akrýlmálningu á striga og viðfangsefni hennar eru fjölbreytt. Arkitektúr borga, bæja og sundlauga er henni hugleikinn, dýr í láði og legi ásamt því sem hún hefur málað portrett myndir af fólki, tré blóm og gras. 

Árið 2014 var Sigrún Huld útnefnd listamanneskja hátíðarinnar List án landamæra.

Listræn lýsing á verkum

Verk Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur einkennast af sterkri teikningu, samræmdri litanotkun og einlægri nálgun að viðfangsefnum sínum. Í myndum hennar birtast oft dýr, fuglar, hús og landslag sem sækja innblástur í nærumhverfið og skapa hlýjan og persónulegan myndheim.

Verkin bera með sér kyrrð, fegurð og sköpunargleði sem vekur forvitni áhorfandans. Með sínum einstaka sjónræna stíl skapar Sigrún Huld myndheim sem er bæði aðgengilegur og hugmyndaríkur, þar sem einfaldleikinn og einlægnin fá að njóta sín.

Verk eftir Sigúrnu Huld