Ísak Óli Sævarsson
Ísak Óli útskrifaðist af starfsbraut fyrir fatlað fólk frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ árið 2009, þar sem honum gafst kostur á að þroska list sína. Hann hefur síðan sótt fjölda námskeiða í Myndlistarskólanum í Reykjavík og lauk diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun frá sama skóla árið 2017.
Ísak Óli var valinn listamaður hátíðarinnar árið 2012 og hefur haldið fjölda sýninga í gegnum árin, bæði einkasýningar og samsýningar. Hann hefur meðal annars verið í samstarfi við Hugleik Dagsson og sýndu þeir saman verk á Kjarvalsstöðum árið 2014 á sýningunni SAMSUÐA. Einnig var Ísak Óli einn af hönnuðum markaðsefnis vegna Stoltgöngunnar árið 2016, þar sem hann vann í samstarfi við auglýsingastofuna PIPAR/TWBA.
Ísak Óli er í stöðugri þróun sem listamaður og listin þroskar hann sem einstakling. Hann er mjög afkastamikill listamaður og eru fjölmörg verk hans í einkaeigu sem og í eigu hins opinbera um land allt.
Ísak Óli vinnur mikið með endurtekningu í verkum sínum og má á vinnustofu hans sjá óteljandi málverk af Strumpunum í öllum mögulegum útfærslum, bræðrunum Karíusi og Baktusi, Valla og Múmínálfunum.
Listræn lýsing verka
Verk Ísaks Óla Sævarssonar einkennast af litríkri og leikandi myndsköpun þar sem þekktar teiknimynda- og sögupersónur fá nýtt líf á myndfletinum. Í verkunum má greina sterka tilfinningu fyrir endurtekningu, mynstri og sjónrænum takti, þar sem persónurnar verða að byggingareiningum í kraftmiklum og heilstæðum myndheimi.
Myndefnið sækir gjarnan innblástur í heim barnaefnis og dægurmenningar, þar sem kunnuglegar fígúrur birtast í fjölbreyttum samsetningum og litríku samhengi. Verkin bera með sér gleði, forvitni og persónulega sýn á myndmálið, þar sem skýr form, skærir litir og einlæg nálgun skapa sterka sjónræna upplifun og aðgengilegan en jafnframt sérkennilegan heim.