E.S.M.Ó. Elín S. M. Ólafsdóttir

Elín starfar að listsköpun sinni í Listvinnzlunni.

Húnhefur lagt stund á listnám á Íslandi og erlendis. Hún lauk diplómanámi í Myndlist frá Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2017.

Elín er meðlimur í leikhópnum Tjarnarleikhúsið og hefur komið að fjölbreyttum störfum á vettvangi leikhússins.

Elín hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningu á Café Mokka. Meðal samsýninga er sýningin Áhrifavaldar á Safnasafninu á Svalbarðsströnd og samstarfssýning með Kristínu Gunnlaugsdóttur í Listasal Mosfellsbæjar á dagskrá Listahátíðarinnar List án landamæra. Elín hefur jafnframt sýnt reglulega í samstarfi við List án landamæra. Listaverk Elínar hafa einnig birst í bókum og í tímaritum.

Hún sinnir ráðgjöf um inngildingu sem meðlimur Listvinnzlunnar.

Árið 2024 var Elín útnefnd listamanneskja hátíðarinnar List án landamæra. 

Listræn lýsing verka

Verk Elínar S. M. Ólafsdóttur einkennast af ríkulegu ímyndunarafli, ævintýralegu myndmáli og persónulegri frásögn. Í verkunum fléttast saman sjálfskoðun, sköpunargleði og tjáningarkraftur, þar sem litir, fígúrur og tákn skapa lifandi og fjölbreyttan myndheim.

Myndir Elínar bjóða áhorfandanum að virkja eigið ímyndunarafl og finna sínar eigin tengingar við verkin. Með einlægri og leikandi nálgun skapar hún sjónrænan heim sem vekur forvitni og gefur rými fyrir persónulega túlkun og upplifun.

Verk eftir Elínu