Birkir Sigurðsson

Birkir Sigurðsson, einnig þekktur undir listamannsnafninu BippiArt, starfar að fjölbreyttri listsköpun sinni í Listvinnzlunni.

Hann hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum hér á landi og einnig komið fram erlendis með verk sín. Birkir myndi sjálfur skilgreina sig sem „underground“ listamann og endurspeglast það í frumlegri og persónulegri nálgun hans á listina.

Hann vinnur með fjölbreyttar tækniaðferðir í listsköpun sinni og hefur sérstaklega næmt auga fyrir ljósmyndun og myndbyggingu. Sköpunargáfa Birkis er einstök og nýtir hann gjarnan endurunnið efni í verk sín, þar sem hann umbreytir efnivið á áhugaverðan og skapandi hátt á striga. Verk hans bera með sér sterka tilfinningu fyrir umhverfi, formum og áferð.

Birkir hefur einnig mikinn áhuga á ljósmyndun, sérstaklega á dýrum og náttúru, þar sem hann fangar augnablik og stemningu með sínum eigin stíl.

Hann útskrifaðist úr Fjölbrautaskólanum við Ármúla árið 2015, þar sem hann lagði stund á myndlist og ljósmyndun á árunum 2012–2015. Þá stundaði hann nám við Myndlistaskólann í Reykjavík á árunum 2015–2017 auk þess að sækja ýmis námskeið við skólann.

Á samfélagsmiðlum má finna verk hans undir Instagram-síðunum „bippiart“ og „mr_bossbirkir“.

Listræn lýsing verka

Verk Birkis Sigurðssonar einkennast af kraftmikilli myndbyggingu, sterkri litanotkun og persónulegri sýn á myndefnið. Í verkunum mætast sköpunargleði og forvitni, þar sem form og litir vinna saman að því að skapa lifandi og eftirtektarverða heild.

Myndheimur Birkis ber með sér leikandi nálgun og einlæga tjáningu. Verkin bjóða áhorfandanum að skoða smáatriðin, mynda eigin tengingar og upplifa sjónrænan heim sem er bæði líflegur og hugmyndaríkur.

Verk eftir Birki

Forrest Gump Meme

Viðtal við Birki Haust 2024