Listvinnzlan er óhagnaðardrifin listmiðstöð í hjarta Reykjavíkur þar sem listsköpun, fjölbreytileiki og samvinna eru í fyrirrúmi.
Hjá okkur vinnur fatlað listafólk að eigin verkum og skapandi verkefnum, heldur sýningar og tekur virkan þátt í menningarlífinu. Öll eru velkomin að skapa, skoða og njóta með okkur.
Ráðgjöf, þjónusta og verkefni
Við bjóðum upp á ráðgjöf, þjónustu og fjölbreytt verkefni fyrir einstaklinga, hópa, stofnanir og fyrirtæki.
Kynning og stuðningur fyrir listafólk
Við veitum listafólki kynningu, stuðning og umboðsstörf. Á síðunni okkar má kynnast listafólkinu og verkum þess.
Listmiðstöð fyrir fatlað listafólk
Í listmiðstöðinni vinnur fatlað listafólk að listsköpun og skapandi verkefnum. Þannig sköpum við atvinnumöguleika og aukum þátttöku í samfélaginu.
Sala listaverka
Við aðstoðum listafólk við að halda sýningar og selja verk sín, og hjálpum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vilja fjárfesta í íslenskri myndlist.
Listvinnzlan á Instagram
Sala listaverka
Vinsamlegast hafið samband ef áhugi er á að skoða eða kaupa listaverk.
Listvinnzlan veitir fjölbreytta aðstoð innan myndlistar, bæði fyrir listamenn og áhugasama safnara.
Við styðjum við listamenn við að halda sýningar, koma listaverkum á framfæri og annast sölu þeirra.
Einnig aðstoðum við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem vilja fjárfesta í íslenskri myndlist, hvort sem um er að ræða einstakt verk eða uppbyggingu á safni til framtíðar.
Markmið okkar er að skapa faglegan og traustan vettvang fyrir listsköpun, sýningar og meðvitaða listkaupendur.
Aðgengi
Hægt að keyra upp að dyrum. Inngangur: Rampur og nýleg lyfta með góðu aðgengi fyrir hjólastóla.
Inngangur Austurstræti 5Austurstræti er orðið að göngugötu. Inngangur: Þröskuldur og eldri lyfta í góðu ástandi.
Inngangur Hafnarstræti 6Rólegt og bjart umhverfi með stillanlegri lýsingu og vinnuaðstöðu sem hægt er að laga að mismunandi þörfum.
TæknirýmiðGott aðgengi um allt rýmið, þar á meðal aðgengileg snyrting.
Meginrýmið



