Elísabet Sóldís Þorsteinsdótti
Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir er sjálfskapaður listamaður með fjölbreyttan áhuga á sköpun og tjáir sig í gegnum myndlist og ritlist. Hún vinnur með tölvugrafík, teikningar og málverk og sækir innblástur í eigin hugarheim, tilfinningar og upplifun. Í verkum sínum tekst hún á við myrkar hugsanir og umbreytir þeim í aðlaðandi og litríka tjáningu.
Elísabet hefur sótt námskeið hjá Myndlistarskóla Reykjavíkur, Myndlistarskóla Kópavogs og Lýðskólanum á Flateyri, auk þess að taka þátt í fjölda ritsmiðja. Hún hefur þróað með sér sterka rödd sem einkennist af frjálsri og persónulegri nálgun þar sem hún endurorðar veruleikann og túlkar hann bæði sjónrænt og í texta.
Grafísk hönnun er hennar eftirlætis miðill þar sem hún upplifir hana sem eins konar ævintýraheim sem er óháður staðalímyndum raunveruleikans. Þrátt fyrir það gegnir texti lykilhlutverki í listsköpun hennar, þar sem hún upplifir verk sín í gegnum tilfinningar, lit og orð frekar en skýra sjónræna mynd.
Fyrsta einkasýning hennar, EFTIRSKIN, var haldin í Gallerí Úthverfu á Ísafirði árið 2022, þar sem hún sýndi nýleg verk sín. Á sama tíma gaf hún út sína fyrstu ljóðabók, SKÁLDIÐ BLÓMSTRAR, sem endurspeglar hráa, frjálsa og tilfinningaríka tjáningu hennar. Verk Elísabetar einkennast af hugmyndaauðgi, húmor og andstæðum tilfinningum þar sem gleði og sorg mætast í lifandi og kraftmikilli heild.
Verk eftir Sóldísi