Listvinnzlan er óhagnaðardrifin listmiðstöð í hjarta Reykjavíkur þar sem listsköpun, fjölbreytileiki og samvinna eru í fyrirrúmi.
Hjá okkur vinnur fatlað listafólk að eigin verkum og skapandi verkefnum, heldur sýningar og tekur virkan þátt í menningarlífinu. Öll eru velkomin að skapa, skoða og njóta með okkur.

Hafa samband

Ráðgjöf, þjónusta og verkefni
Við bjóðum upp á ráðgjöf, þjónustu og fjölbreytt verkefni fyrir einstaklinga, hópa, stofnanir og fyrirtæki.

Kynning og stuðningur fyrir listafólk
Við veitum listafólki kynningu, stuðning og umboðsstörf. Á síðunni okkar má kynnast listafólkinu og verkum þess.

Listmiðstöð fyrir fatlað listafólk
Í listmiðstöðinni vinnur fatlað listafólk að listsköpun og skapandi verkefnum. Þannig sköpum við atvinnumöguleika og aukum þátttöku í samfélaginu.

Sala listaverka
Við aðstoðum listafólk við að halda sýningar og selja verk sín, og hjálpum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vilja fjárfesta í íslenskri myndlist.

Listvinnzlan á Instagram

Framundan

Ómur í Ásmundarsafni - Opnun 14.nóvember kl. 15:00

Furðufuglar á hugarflugi - Samsýning 10.október í Gerðubergi

Listhópur hátíðarinnar List án landamæra 2026

Sala listaverka

Vinsamlegast hafið samband ef áhugi er á að skoða eða kaupa listaverk.

Listvinnzlan veitir fjölbreytta aðstoð innan myndlistar, bæði fyrir listamenn og áhugasama safnara.

Við styðjum við listamenn við að halda sýningar, koma listaverkum á framfæri og annast sölu þeirra.

Einnig aðstoðum við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem vilja fjárfesta í íslenskri myndlist, hvort sem um er að ræða einstakt verk eða uppbyggingu á safni til framtíðar.

Markmið okkar er að skapa faglegan og traustan vettvang fyrir listsköpun, sýningar og meðvitaða listkaupendur.

Aðgengi

A room with wooden flooring, multiple desks with desktop computers, and a green screen at the far end. There are large windows along one wall and a camera on a tripod pointed towards the green screen.
An art gallery or workspace with various abstract sculptures and paintings displayed. There are desks and chairs near large windows, with plants and artwork scattered throughout the room.
Building entrance with icewear store, blue wheelchair accessible sign, and glass door with yellow outline, above a mural with sunset and mountains.
The image shows the exterior of an icewear store called 'Icewear Magasin' with colorful flags hanging above and a mural of mountains on the building. A sign on the top window reads 'LISTVINN ZLAN.' There is a tree in front, with some pink flowers and a black lamppost nearby.

Hægt að keyra upp að dyrum. Inngangur: Rampur og nýleg lyfta með góðu aðgengi fyrir hjólastóla.

Inngangur Austurstræti 5

Austurstræti er orðið að göngugötu. Inngangur: Þröskuldur og eldri lyfta í góðu ástandi.

Inngangur Hafnarstræti 6

Rólegt og bjart umhverfi með stillanlegri lýsingu og vinnuaðstöðu sem hægt er að laga að mismunandi þörfum.

Tæknirýmið

Gott aðgengi um allt rýmið, þar á meðal aðgengileg snyrting.

Meginrýmið