Listakona og kennari
Sigga Björg Sigurðardóttir (1977) er kunn fyrir hugmyndaríkar teikningar sínar, innsetningar, myndbönd og bókverk. Hún hefur skapað sér einstakan myndheim þar sem fantasía, húmor og hryllingur fara saman hönd í hönd. Í verkum sínum tekst hún á við tilfinningalífið í allri sinni óreiðu og skapar stemningar sem erfitt er að færa í orð. Með einkennandi stílbrögðum sínum nær hún þó að tjá ótrúlegustu blæbrigði.
Sigga Björg útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Eftir útskrift fluttist hún til Glasgow í Skotlandi þar sem hún lauk meistaragráðu í myndlist frá The Glasgow School of Art árið 2004. Síðan þá hefur hún sýnt verk sín í söfnum og galleríum víða um heim og verk hennar er að finna í fjölmörgum opinberum söfnum hérlendis og erlendis.
Sigga Björg hefur verið stundakennari við Myndlistaskólann í Reykjavík síðastliðin 10 ár og kennt teikningu í flestum deildum skólans. Auk þess hefur hún kennt við Listaháskóla Íslands.
Sigga Björg hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hérlendis og erlendis, auk þess að starfa að fjölbreyttum verkefnum á sviði myndlistar og kennslu.
Fyrir frekari upplýsingar er vísað á heimasíðu Siggu Bjargar: www.siggabjorg.net