Margrét M. Norðdahl

Listamanneskja, framkvæmdastýra og kennari

Margrét hefur starfað við myndlist og list og menningartengd verkefni frá árinu 2001.
Hún er stofnandi og framkvæmdastýra Listvinnslunnar, vettvangs sem vinnur að inngildingu í listum og menntun.
Margrét er kennari hjá Listvinnzlunni, hjá Fjölmennt, sí- og endurmenntunarmiðstöð fatlaðs fólks, og stundakennari við Listaháskóla Íslands.

Margrét hefur gegnt fjölmörgum störfum innan lista- og menningargeirans, meðal annars sem framkvæmdastýra og listrænn stjórnandi Listar án landamæra, deildarstýra myndlistarnáms fyrir fatlað fólk við Myndlistarskólann í Reykjavík, stjórnarkona hjá Safnasafninu á Svalbarðsströnd, í stjórn Listahátíðar í Reykjavík í 10 ár sem formaður og varaformaður 2 ár í seinn, og sat í stjórn Listar án landamæra í fjöldamörg ár.

Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum, nú síðast í sýningunni Murr í Listasafni Reykjavíkur, auk þess að sýningarstýra og leiða fjölbreyttaviðburði á sviði lista og menningar. Margrét hefur haldið fjölda erinda og fyrirlestra hérlendis og erlendis um inngildingu í listum, með sérstakri áherslu á tengsl lista, menntunar og fötlunar.

Margrét hefur kennt list og jóga fyrir börn og fullorðna á öllum aldri, auk þess sem hún hefur víðtæka reynslu af fundarstjórn, rýnivinnu og faglegumskrifum.

Margrét er með BA í Sjónlistum og M.A.-gráðu í listkennslu. M.A.-ritgerð hennar byggir á eigindlegrirannsókn á möguleikum fatlaðs fólks á sviði lista.

Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, þar á meðal einstaklingsverðlaun ÖBÍ – Öryrkjabandalags Íslands, Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar ásamt List án landamæra, Múrbrjót Landssamtaka Þroskahjálpar með Diplómanámi í myndlist og Listvinnzlunni, og Frikkann, heiðursverðlaun Átaks.

Margrét starfar í dag sem framkvæmdastýra, kennari og ráðgjafi hjá Listvinnslunni og heldur áfram að efla þátttöku allra í menningu og listum.