Taktu þátt!

Taktu þátt!

Með því að taka þátt fjárfestirðu í tilvist okkar og öllum þeim verkefnum sem við vinnum að.

Listvinnzlan er óhagnaðardrifið almannaheillafélag

Ef þú vilt leggja okkur lið, taka þátt og styrkja okkar starf getur þú millifært inn á bankareikninginn okkar sem er hér fyrir neðan.

Við þiggjum allan stuðning, stóran sem smáan.

Kennitala 670924-1140
Banki 0515-26-012627

Við notum styrkina í samræmi við okkar almannaheillastarfsemi og tryggjum að þeir fari beint til þeirra verkefna sem við erum vinna að.

Takk fyrir að vera með og styðja við starfið okkar.

Listvinnzlan er óhagnaðrdrifið amannaheillafélag sem er drifið af styrkjum frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum.

Við erum að vinna í því að sækja um að vera á almannaheillafélaga skrá Skattsins.

Þegar við erum komin á Almannaheillaskrá Skattsins þá gildir eftirfarandi skattafsláttur sem er útskýrður hér fyrir neðan.

Núna vinnum við að skúlptúrum sem verða sýndir á listasýningunni okkar sem við opnum 24.maí 2026 á Listasafni Samúels í Selárdal, Vestfjörðum. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og stendur út ágúst mánuð.


Fyrir einstaklinga sem styrkja (styrkveitendur)

Skattafsláttur

  • Þú getur fengið skattafslátt ef þú styrkir viðurkennd almannaheillafélög.

  • Félagið verður að vera á lista Skattsins yfir slík félög.

  • Skattafslátturinn dregst beint frá tekjuskattsstofni þínum.

Hámarks- og lágmarksstyrkur til frádráttar árið 2025:

  • Lágmark: 10.000 kr.

  • Hámark: 350.000 kr. á ári

Skilyrði:

  • Styrkurinn þarf að vera sannanlegur (t.d. millifærsla eða kortagreiðsla).

  • Ekki fæst skattafsláttur fyrir:

    • Vinnu (vinnuframlag)

    • Gjafir í formi vöru

    • Greiðslur í skiptum fyrir þjónustu eða vöru