Listvinnzlan er inngildandi og skapandi vettvangur
Listvinnzlan er nýr skapandi vettvangur á sviði inngildingar, menningar, menntunar og lista.
Listvinnzlan hefur komið á fót Listmiðstöð. Listmiðstöðin er brýnt verkefni. Starfsemin er atvinnuskapandi, hún eykur inngildingu í listalífi, menningarlífi og atvinnulífi.
Markmið Listvinnzlunar eru að vinna að inngildandi lista-, menningar- mennta-, og atvinnulífi þar sem öll tilheyra.
Við Listvinnzluna starfar öflugt teymi listafólks sem býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu. Listvinnzlan heldur opnar smiðjur og námskeið, tekur að sér verkefni og ráðgjöf ásamt að styðja listafólk við þátttöku í listalífi. Listvinnzlan veitir aðstoð við að halda sýningar, við sölu listaverka og aðstoðar áhugasama við að fjárfesta í myndlist.
Margrét M. Norðdahl stofnaði Listvinnzluna árið 2022 en stofnun Listvinnzlunar á sér aðdraganda allt til ársins 2011. Nafnið vísar í framtíðina, frá fiskvinnslu til Listvinnzlu. Listin og skapandi vinna á sér engin takmörk og útilokar engan.