Listvinnzlan er inngildandi og skapandi vettvangur

Listvinnzlan er nýr skapandi vettvangur á sviði inngildingar, menningar, menntunar og lista.

Listvinnzlan hefur komið á fót Listmiðstöð. Listmiðdtöð er brýnt verkefni. Starfsemin er atvinnuskapandi, hún eykur inngildingu í listalífi, menningarlífi og atvinnulífi.


Markmið Listvinnzlunar eru að vinna að inngildandi lista-, menningar- mennta-, og atvinnulífi þar sem öll tilheyra.

Við Listvinnzluna starfar öflugt teymi listafólks sem býr yfir fjölbreyttri reynslu og þekkingu. Listvinnzlan tekur að sér verkefni og ráðgjöf ásamt að styðja listafólk við þátttöku í listalífi. Listvinnzlan veitir aðstoð við að halda sýningar, við sölu listaverka og aðstoðar áhugasama við að fjárfesta í myndlist.

Margrét M. Norðdahl stofnaði Listvinnzluna árið 2022 en stofnun Listvinnzlunar á sér aðdraganda allt til ársins 2011. Nafnið vísar í framtíðina, frá fiskvinnslu til Listvinnzlu. Listin og skapandi vinna á sér engin takmörk og útilokar engan.

Ráðgjöf, þjónusta og verkefni

Starfsfólk Listvinnslunar tekur að sér ráðgjöf, þjónustu og verkefni fyrir einstaklinga, hópa, stofnanir og fyrirtæki.

Hafðu samband

Kynning, stuðuningur og umboðsstörf

Sjáum um að kynna, styðja og vinna umboðsstörf fyrir listafólk. Hægt er að kynna sér listafólk hér efst á síðunni.

Hafðu samband

Listmiðstöð

Við höfum komið á fót listmiðstöð þar sem fatlað listafólk getur unnið að listsköpun og skapandi verkefnum og haft af því atvinnu.

Hafðu samband

Hvað er inngilding?

Þetta

Inngilding felur í sér margbreytileika, jafnrétti og jafnræði.

  • Hún felur í sér að við séum samþykkt eins og við erum. Af ólíkum þjóðernum, með fjölbreyttan húðlit, fötluð og ófötluð, af öllum kynjum, kynhneigð, aldri, stétt og svo framvegis.

er

Inngilding er að við fáum öll sömu tækifærin, valdeflingu og þann einstaklingsbundna stuðning sem við þurfum til að nýta okkur tækifærin.

inngilding

Inngilding er þegar við tilheyrum.

  • Að tilheyra þýðir að þér finnst þú samþykkt eins og þú ert og þú treystir umhverfi þínu nógu mikið til að vera þú sjálf án ótta við að vera dæmd.

  • Að tilheyra felur í sér að þú hefur gildi - að þú sem manneskja sért þörf og eftirsótt. Að á þig sé hlustað og þú virt.’’

    MN 2022

Vertu félagi í Listvinnzlunni

Við bjóðum þig inn í skapandi og hlýlegt samfélag Listvinnzlunnar. Með því að gerast félagi í Listvinnzlunni styrkir þú verkefni okkar og tekur þátt í lifandi listheimi þar sem hugmyndir fá að blómstra. Félagar styðja við starf Listvinnzlunnar, listsköpun, þátttöku fólks með ólíkan bakgrunn og þau verkefni sem unnin eru í þágu samfélagsins.

Allar upplýsingar eru trúnaðarmál og eingöngu notaðar í félagaskrá Listvinnzlunnar.

Fylltu út skráningarformið hér fyrir neðan og vertu velkomin/n í okkar skapandi hóp!

Mannréttindastefna

Listvinnzlunnar

Listvinnzlan vinnur fyrir og með fötluðu fólki. Við byggjum starfsemina á mannréttindum, virðingu og jafnræði. Við tryggjum að allir notendur hafi tækifæri til að nýta hæfileika sína, taka þátt í listum og menningu ásamt að móta eigin feril og starf innan Listvinnzlunar. Starfsemin er inngildandi og aðgengileg öllum. Við veitum einstaklingsbundin stuðning sem eflir sjálfstæði, valdeflingu og félagslega þátttöku.

Við leggjum áherslu á jafnrétti og virka þátttöku allra, óháð fötlun, kyni, kynhneigð, taugamargbreytileika, uppruna, fjárhagslegri stöðu eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á stöðu fólks í samfélaginu. Við fjarlægjum hindranir, berum virðingu fyrir fjölbreytileika og fögnum honum.

Listvinnzlan stuðlarþróun og þroska hæfilleika, nýtingu styrkleika, sýnileika, þátttöku í menningarstarfi og auknum lífsgæðum notenda. Starfsemin byggir á samstarfi við notendur, hagsmunasamtök og samfélagið, tryggir áhrif notenda á starfsemi og skapar raunveruleg tækifæri.

Starfsfólk Listvinnzlunar