Við erum í hjarta miðbæjarins Austurstræti 5.

Gengið er inn bæði frá Austurstræti 5 og Hafnarstræti 4.

Inngangangur frá Hafnarstræti: rampur og nýleg lyfta með góðu aðgengi fyrir fólk í hjólastól.

Inngangur frá Austurstræti: þröskuldur og eldri lyfta sem er í góðu ástandi.

Hæðin: Við erum á 3ju hæð. Þegar komið er úr lyftunni við innganginn frá Hafnarstræti er gengið til hægri inn ganginn. Er komið er úr lyftunni við innganginn frá Austurstræti er hægt að fara inn aðra hvora hurðina, þar erum við.

Aðgengi á hæðinni: Gott aðgengi að öllu rýminu, þar á meðal aðgengileg snyrting. Lýsingin er hlý, björt og stillanleg eftir þörfum. Við bjóðum upp á hæðarstillanleg vinnuborð og stóla, svo allir geti unnið á sínum forsendum. Rólegt og skynvænt rými til að styðja við vellíðan og einbeitingu.

Hafið samband við okkur í síma 5375557

Við tökum á móti ykkur og vísum ykkur inn.

Hvernig kemst ég inn í Listvinnzluna?

Mynd 1 - frá Austurstræti 5 Mynd 2 - frá Hafnarstræti 4

Hvernig kemst ég að Listvinnzlunni?

Aðkoma að Listvinnzlunni og bílastæði fyrir hreyfihamalða.

5 leiðir liggja að Listvinnzlunni:

  • Um Pósthússtræti, Aðalstræti, Vesturgötu og 2 um Tryggvagötu.

  • Leiðirnar liggja allar um einstefnugötur nema Vesturgata og Tryggvagata nær Geirsgötu.

Aðkoma að Listvinnzlunni:

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða í nágrenninu:

8 bílastæði eru í nágrenninu:

  • Við Austurstræti 11, á móti Hafnarstræti 15,

  • 2 við Tryggvagötu nær Pósthússtræti,

  • við Tryggvagötu nær Naustinni,

  • við Aðalstræti hjá Ingólfstorgi og

  • tvö við Grófina hjá Listasafni Íslands.

Bílastæðahús nálægt Listvinnzlunni:

Inngangar að Listvinnslunni:

2 inngangar:

  • Frá Austurstræti 5 og frá Hafnarstræti 4.

  • Hafnarstrætis megin er rampur og nýleg lyfta með góðu aðgengi fyrir fólk í hjólastól.

  • Austurstrætis megin er lágur þröskuldur og eldri lyfta sem er í góðu ástandi.